Meðhöndlun vegna ösku á bifreiðum.
    

     Ef gosaska fellur á yfirborð farartækja er mikilvægt að hreinsa hana EKKI af með því að strjúka yfir yfirborðið (EKKI TEIKNA Í ÖSKUNA). Ef askan er þurr hreinsast hún af í vindi og síðan er hægt að hreinsa hana endanlega af samkvæmt lýsingu hér að neðar, ef askan nær að blotna er heppilegast að hreinsa hana af með hreinu vatni (ekki heitu), og síðar mildu sápuvatni en nauðsynlegt getur verið að þerra yfirborðið varlega eftir á til að fyrirbyggja að dropar með gosefnum festist við yfirborðið og geti „brennt" það í sólarljósi.

  Gosaska getur virkað eins slípimassi /sandpappír og þannig rispað yfirborð farartækja verulega auk þess sem í henni eru hugsanlega skaðleg efni.

   Gler/rúður þarf að gæta að einnig og varast að nota þurrkur á rúður fyrr en þær eru orðnar hreinar.

   
    Ef skemmdir hafa orðið á bifreiðinni vegna ösku þá er möguleiki að massa rispur úr en ef aska hefur brennt lakkið þá þarf að meta hvert tjón fyrir sig út í hvað miklar viðgerðir þarf að fara.

    Ef frekari upplýsinga er óskað þá er velkomið að hafa samband við okkur í síma 587-2525 eða í gegnum tölvupóst muli@muli.is


 

    ATH: hér eru aðeins einfaldar almennar ráðleggingar til að vekja athygli umráðamanna á hættunni sem gosaska kann að skapa vegna farartækja.

 

Múli Bílaréttingar og sprautun Tunguháls 8 110 Reykjavík Sími 587 2525 Fax 5872530