Samningar við Tryggingafélög.
Múli bílaréttingar og sprautun vill koma eftirfarandi á framfæri við viðskiptahóp sinn.

Múli bílaréttingar og sprautun er með samning við Tryggingamiðstöðina um að gera við tjón sem er bætt af því tryggingafélagi.
Tryggingamiðstöðin hefur tekið upp þá stefnubreytingu að réttinga- og málningarverkstæðin í landinu verða að lækka taxta sinn til að vera sýnileg inn á heimasíðu þeirra,en Múli sér sér ekki fært að verða við þeirri bón þar sem Múli ásamt öðrum réttinga- og málningarverkstæðum er að greiða niður tjónakostnað tryggingafélagana í hverju tjóni sem þau gera við.
    Getur þetta valdið því að tjónþolar halda að þeir megi ekki láta gera við hjá Múla bílaréttingum og sprautun en því er hér með komið á framfæri að samningur við Tryggingamiðstöðina er gildur og eru því allir velkomnir með ökutæki sín í viðgerð til Múla.

    Einnig er því komið á framfæri að Múli bílaréttingar og sprautun uppfyllir allar þær kröfur sem Sjóvá fer fram á samkvæmt sinni stjörnugjöf sem 3ja stjörnu verkstæði. 
    Á heimsíðu Sjóvá kemur fram að Múli sé með eina stjörnu og er það einungis vegna þess að til að fá þessar 3 stjörnur þarf Múli að skrifa undir taxta sem Sjóvá setur upp en gagnst ekki Múla þar sem þá yrði enn þá verið að greiða niður tjónakostnað tryggingafélagsins í hverju tjóni.

    MÚLI VILL SVO Í LOKIN BENDA TJÓNÞOLUM Á AÐ ÞEIM ER Í SJÁLFVALD SETT HVAR ÞEIR LÁTA GERA VIРÖKUTÆKI SÍN,ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ BANNA ÞEIM AÐ FARA Á EITT NÉ ANNAÐ VERKSTÆÐI.

SHS réttingar og sprautun ehf Dvergshöfði 21 110 Reykjavík Sími 587 2525