Undirbúningur bíls fyrir veturinn
Byrjum á hurðunum. Það borgar sig að smyrja í alla lása með lásaolíu, ásamt hjörunum. Á alla gúmmilista skal bera vatnsfráhrindandi efni. Fitan í olíunni, hindrar rakamyndun í lásunum, og hjörunum, ásamt að halda þessu liðugu. Vatnsfráhrindandi efni hindrar raka í að sitja á gúmmílistunum, og að þeir frjósi þannig saman.
Svo skal kíkja á rúðuþurrkurnar, þær eiga að liggja vel að rúðunni, órifnar, og mjúkar. Góð þurrkublöð geta gert gæfumuninn.

Því næst skulum við kíkja undir húddið.
Byrjum á að fylla á rúðupissið með frostþolnum vökva, það er góð regla að fylla alltaf á rúðupissið, um leið og tekið er bensín.
Það þarf að vera nægur kælivökvi á vélinni, með réttu hlutfalli af frostlegi. Það er gott að miða við 50% blöndu af frostlegi og vatni. Frostþolið er hægt að láta mæla á næstu bensínstöð. Við vekjum athygli á því, að ofmikill frostlögur á móti vatni, minnkar frostþolið á kælivatninu, svo ekki hella hreinum frostlegi á kælikerfið, nema í mjög littlum skömmtum. En best er að fara eftir leiðbeiningum frá framleiðanda vörunnar.

Það er mjög gott að láta skipta um smurolíu, og smyrja bílinn fyrir veturinn. Láta þá um leið, smyrja í hurðirnar, eins og nefnt er að ofan. Einnig skal kanna hvort nægt magn af smurolíu sé á vélinni.

Kíkja skal á vatnsmagnið á rafgeyminum. Best er að láta fagaðila sjá um það.Ef rafgeymirinn er orðinn slappur, þá borgar sig að skipta um hann, þar sem rafgeymar slappast hratt í kulda, þá er líklegt að slappur rafgeymir svíkji þig í vetur. Einnig gott að láta kíkja á kertaþræðina í leiðinni.

Fara skal yfir öll ljós á bílnum, og skipta um þær perur sem eru í ólagi. Það er gott að nota stóra glugga, svo sem verslunarglugga, til að sjá hvort bremsuljósin séu að virka.

Síðast en ekki síst skal skoða dekkin. Ávallt skal vera á góðum dekkjum, með ekki minna en 2 mm munstri á veturnar. Miklu skiptir að loftþrýstingurinn sé réttur í dekkjunum, til að fá hámarksgrip. Einnig skiptir máli að vera á vetrarmunstri, þar sem það gefur best grip í snjó og ís. Það er hægt að nota heilsársdekk, en þau gefa ekki eins gott grip í vetrarakstri og vetrardekk. með nöglum á 
Alls ekki má keyra á sumardekkjum á veturnar, þar sem gúmmíið í þeim harðnar, og gefur því mjög lítið grip, fyrir utan að munstrið er ekki gott í snjó og hálku.

En það þarf einnig að muna að tjöruhreinsa dekkin reglulega. Mælt með að hreinsa þau ekki sjaldnar en á 2 vikna fresti, til að fá gott grip. Til að hreinsa dekkin, þá er best að kaupa dekkjahreinsi, og úða yfir gripflötinn á dekkjunum. Síðan er best ef hægt er að keyra í nýjum snjó, en annars þarf að skola dekkin vel með vatni.
Ef dekkin eru ekki tjöruhreinsuð reglulega, þá liggur tjaran neðan á gripfletinum, og gerir dekkin flughál, og eru mörg dæmi um óhöpp og slys út af þessu.

Og munið: Akið varlega í hálkunni

SHS réttingar og sprautun ehf Dvergshöfði 21 110 Reykjavík Sími 587 2525