Um Okkur

Þjónustulundað verkstæði. 

    Múli bílaréttingar og sprautun ehf var stofnað í september 2002 þegar Sigurður H.Sigurðsson keypti Réttingaverkstæði Smára á Vagnhöfða 5 í Reykjavík. Þar hóf Múli rekstur sinn. 
    Fyrstu 2 árin var Múli einungis í réttingum en síðan 2004 hefur öll sprautuþjónusta verið í boði. 
 Múli notast við DUPONT lakk sem er með LE umhverfisvottun. Múli hefur einsett sér að vera eins umhverfisvænt og kostur er.  
    Múli getur tekið að sér flest öll verk stór og lítil. Markmið og metnaður Múla er að skila verkefnum frá sér í toppgæðum.

    Nafnið Múli kemur frá réttingaverkstæði sem var stofnað í Múlacamp árið 1958 í gömlum herbragga. Var það verkstæði eitt að fyrstu sjálfstæðu réttingaverkstæðunum í landinu og var starfandi þar til um miðjan áttunda áratuginn.

    Starfsmenn Múla eru 2.


SHS réttingar og sprautun ehf Dvergshöfði 21 110 Reykjavík Sími 587 2525